
Hvað á að gera, hvert á að fara, hvað þarf að upplifa?
Bangkok er efst á listanum fyrir yndislega geggjun sína. Hröð, hrá, hávær, spennandi, margslungin, endalaus og seiðandi. Borg sem enginn kynnist án þess að mynda sér sterka skoðun þar á. Borg sem er jafn ljót og hún er skemmtileg. Staður til að kynnast og skoða ólíka menningarheima nútímans. Verslaðu, borðaðu, dansaðu og vertu uppnuminn!
Chiang Mai er harður keppinautur Bangkok, en þó á ólíkum nótum. Þessar tvær borgir eiga sáralítið sameiginlegt annað en það, að vera byggðar sömu þjóð – en þó ekki sama fólki. Chiang Mai er staður til að sættast við rigninguna, ramba á nýtt hof daglega, sitja lengi á fornbókasölu, brosa breitt, borða hollt og fara svo í nudd... og aftur í nudd.
Norðurhluti Taílands, Gullni þríhyrningurinn, Chiang Mai, Chiang Rai, Mae Hong Son og fleiri staðir, hafa hljóm og áferð hreinleika og ævintýra. Í fjöllunum eru fjölbreytilegir og kúnstugir flökkuættbálkar; í byggð leynist hreinasta og stoltasta arfleifðin.
Strandlífið er skemmtilegt og einfalt. Litlar fallegar eyjur, sem margir halda að séu bara leikmynd í Hollywoodmyndum, ævintýraveröld hafdjúpsins í sjávarmálinu, humar og skel á hverjum disk, ferskt hvítvín, kældur bjór, brosandi bikini og sólbrennt tattú.
Fílarnir eru þarfasti þjónninn, besti vinur mannsins og landvættirnir fjórir í huga Taílendinga. Enginn skyldi fara um gamla Síam án þess að ná einhverju sambandi við þessi stórfenglegu dýr með góðum reiðtúr, heimsókn á fílaspítala eða njóta fílasýningar.
Matur matur matur...og drykkur. Að borða er að vera í Taílandi. Þetta er aldingarður bragðlaukanna.
Fegurð. Hvort heldur það er stimamjúk taílensk blómarós, fagurhannaður hótelgarður, fingrafimur dansari eða fornt hof - allstaðar er að finna taílenska fegurð. Í ljótleika Bangkok-borgar finnast flottustu veitingastaðir veraldar og á götunum ganga þokkadísir og stoltir folar. Í búðunum býðst nýjasta tíska og gersemar. Útlitið er allsráðandi í Taílandi.
Nuddið er eins og maturinn. Á hverju horni er nuddstofa og allir virðast alltaf vera í nuddi. Og allir virðast kunna að nudda. Taí, olíu eða fóta... minnst daglega.





