Siglingar í Taílandi

Meginland Taílands er víðfemt og víða hlykkjast myndarleg skipgeng fljót. Chao Phrayafljótið í Taílandi er og var vagga Síam þar sem Bangkok stendur og hin forna höfuðborg Ayuttaya sat áður. Pingáin sem rennur frá Chiang Mai suður og sameinast öðru stórfljótum var um aldir aðal samgönguæð Norður Taílands. Stórfljótið Mekong er farvegur skemmtilegrar siglingar frá landamærabænum Chiang Kong í Taílandi til Luang Prabang í Laos.

Að renna eftir stórfljóti á huggulegum bát í góðum félagskap er góð skemmtun. Þetta eru ljúfir tveir dagar þar sem afþreying og skemmtun er í höndum hvers og eins. Útsýnið er ávallt fallegt en ekki mjög breytilegt. Græn og gróin fjöll, kalksteinsklettar í fjarska, einstaka fraktbátur lullar áfram og sífelldur straumur af litlum kanóum, eintrjáningum og mótorknúnum langhalabátum. Fiskilínur hanga úr trjám og net við bauju, fiskifangari hendir út kastneti yfir fiskitorfu eða veiðimenn sitja í bátunum og dorga. Allstaðar er líf en hvergi kös. Pakbeng er lítill bær en samt langmesta byggðin á allri siglingaleiðinni. Sjaldnast sjást þorpin fyrir trjám og gróðri. Það er til merkis um að þorp leynist inní skóginu ef margir bátar eru bundnir við bakkann. Þar sem sandbakkar liggja að ánni hefur víða verið sáð fyrir grænmeti og korni, annarstaðar sjást kýr, buffalóar eða geitur á beit.

Á Taílandsflóa sigla fallegar litlar skútur á milli framandi eyja og myndarlegra hafna. Phuket, Koh Samui, Phi Phi og kalksteinsklettaeyjur á Phang Nga flóa eru áfangastaðir og augnayndi ferðalanga.

Óríental býður íslensku ævintýrafólki uppá einstakar siglingar um fljót Taílands með Mekhala og Luang Say bátunum og um Taílandsflóa með Suwan Macha og Silolona skútunum.

Mekhalabáturinn á milli Bangkok og Ayuttaya

Í gegnum aldirnar hefur Kóngafljótið Chao Praya verið lífæð Taílands. Borið með sér næringu...

Read more
 
Mekongsigling á Luang Say bátnum

Luang Say bátarnir sigla sömu leiðina allt árið um kring, nema í júni eru þeir dregnir á þur...

Read more
 
Silolona skútan

Silolona skútan var smíðuð árið 2004 á Súlavesíeyju af skipasmiðum af ætt Konja þar sem hefð...

Read more
 
Bangkok, Koh Samuieyja og skonnortusigling á Suwan Macha

Fjögurra daga sigling um Taílandsflóa, trópískar eyjur og framandi þjóðgarða. Flogið...

Read more
 
Bangkok, Phuket og skonnortusigling á Suwan Macha

Fjögurra daga sigling um Taílandsflóa, trópískar eyjur og framandi þjóðgar Flogið f...

Read more
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.