Mekhalabáturinn á milli Bangkok og Ayuttaya

Í gegnum aldirnar hefur Kóngafljótið Chao Praya verið lífæð Taílands. Borið með sér næringu og áburð fyrir akra og lífríki auk þess sem Síam og Taíland byggðist upp frá ósum þess og menningin dreifðist frá bökkunum.
Enn í dag er áin mikilvæg samgönguæði, vatnsforði og matarkista. Óríental býður uppá siglingar á milli nýju og gömlu höfuðborganna Bangkok og Ayutthaya.

Mekhala bátarnir eru fallegir endurgerðir grjónageymslubátar sem í meira en öld sigldu tryggir með hrísgrjón og aðrar vörur eftir Chao Praya ánni. Í dag sigla þessir bátar eftir kóngaleiðinni frá Sumarhöllinni Bang Pa In og Bangkok .
Töfrar þessarar ferðar eru rólegur takturinn í hægri siglingu þar sem farþegum gefst kostur á að virða fyrir sér iðandi mannlífa í litlum þorpum á bökkunum, ósnortna skógarlundi og fenjasvæði og hina margslungnu umferð um fljótið.

Leiðarlýsing

Fyrri dagur:
Farið er frá Bangkok á miðjum degi og siglt er róleg norður í átt að Ayutthaya . Við sólarlag er lagst að bryggju við Kai Tia musterið og áð þar yfir nóttina. Áhöfnin framreiðir gómsætan taílenskan mat við kertaljós uppá dekkið áður en gengið er til náðar í viðarklæddum káetunum.

Síðari dagur:
Hægt er að láta vekja sig kl. 6 um morguninn til að taka þátt í hefðbundnum ölmusugjöfum til munkanna frá Kai Tia. Morgunmatur er svo framreiddur þegar landfestum er sleppt og siglingunni lokið til Bang-Pa-In Sumarhallarinnar sem er einstak dæmi um taílenskan arkitektúr þeim tíma er ríkið opnaði dyr sínar gagnvart evrópskum áhrifum. Leiðsögumaður með sérþekkingu á höllinni og sögu konungsríkisins tekur á móti farþegum við bryggjuna og leiðir um hallarsvæðið. Frá höllinni er síðan siglt á langhalabátum áfram um hálftíma til Ayutthaya þar sem byrjað er á að snæða miðdegisverð áður en rústir gömlu höfuðborgarinnar eru skoðaðar.
Undir lok dags er svo haldið með bíl aftur til Bangkok.
Einnig er hægt að fara frá Ayuttaya til Bangkok
Ef farþegar kjósa að fara öfuga leiðina hefst ferðin frá Bangkok með bíl kl. 8 um morguninn og endar daginn eftir undir hádegi.

MEKHALA BÁTARNIR
Mekhala bátarnir, sem eru alls þrír, eru tuttugu metra langir og byggðir úr tekki. Eftir að hafa þrælað á ánni í yfir hundrað ár var þeim breytt í fljótandi hótel. Tveir þeirra eru með 6 káetur og sá þriðji með 9 tveggja- til þriggja manna káetum. Allar káetur eru búnar góðum baðherbergjum auk þess er rúmgott sóldekk og skuggsælt svæði undir seglþaki.

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.