Víetnam

Stór ævintýri í uppsiglingu!

Dragðu djúpt að þér andann áður en þú mætir Víetnam. Þín bíður mögnuð
upplifun og framandi ævintýri í landi sem sameinar exótík og unað Asíu á
einstakan hátt.

Strax og komið er til Víetnam vakna upp minningar úr bókum og kvikmyndum
um fjarlæga asíska staði. Trjónusniðnir hrísgrjónahattar, þokkafullir
silksíðkjólar, mannmergðin og ös hjóla og bíla á götunum, framandi
matarlykt og margslungin hljómur umhverfisins.

Víetnam er meira en Víetnamstríði. Stálslegið af dugnaði og hörku,
fínofið sem silki í menningu og handverki, óbugað af erlendum drottnurum
og árásum. Hvorki Kínverjar, Frakkar né Bandaríkjamenn gátu hneppt þessa
þjóð í sitt hald. Þessi langa skýra sneið af Indókínaskaganum er svo
ólík nágrönnum sínum. Að þeir hafi verið settir undir sama hattinn í
tilraun nýlenduherranna sem eitt af þremur löndum Franska Indókína er
fráleit hugsun í dag. Víetnamir eiga lítið skilt við khemerana í
Kambódíu eða ljúfa laosbúana. Rifjast nú upp margkveðin vísa.

Víetnamar sá hrísgrjónum,
Kambódíubúar horfa á þau vaxa,
en Laosbúar hlusta á þau vaxa

Einsog landið er í laginu, mjótt, beint og upprétt, eins er þjóðin.
Harðgerð og stolt, vinnusöm og heiðarleg. 1,600 km frá hæglátu og svölu
norðrin með höfuðborgina Hanoi til óseyra Mekongfljóts við Saígonborg.
Miðja vegu á milli þessarra frægu borga, Hanoi og Saígon, stendur hin
forna höfuðborg Hue þar sem konungar hins sjálfstæða Víetnam sátu með
hirð sinni í hundruði ára.

Langar krítarhvítar strendur með grænbláum sjó og kóralrifum, trópísk
fjöll með villtri ósnortinni náttúru og afskekktum byggðum fjallafólk,
fornfrægar borgir og söguslóðir draga ævintýraþyrsta ferðamenn enda á
milli um Víetnam í milljónavís hvert ár.

Víetnam er heillandi land með langa og mikla sögu. Eftir þúsundir ára
yfirráð kínverja tóku við 900 ár sjálfstæðis og vaxtar en með yfirgangi
evrópskra nýlenduherra lögðu Frakkar undir sig landið og héldu þeim
undir sínum hæl fram að síðari heimstyrjöldinni þegar stutt og ólánsamt
tímabil Bandarískra íhlutunar tók við.

Einungis Kína getur státað af lengri ríkurlegri sögu en Víetnamar en
kosturinn við Víetnam að landfræðilega er svo auðvelt að ná utan um
söguna og upplifunina, að ná að skilja og greina kjarna þjóðarinnar og
undirstöður forsögunnar.

Víetnam lítur engum herrum í dag og þjóðin er sameinuð í stolti yfir Po
frænda (Ho Chi Minh) og sjálfstæðisbaráttunni.

Matargerð Víetnama er lýsandi fyrir þjóðina. Í stað kraumandi karri og
krassandi chíllíkræsinga Taílands eða sætrar matargerðar Kínverja líkist
Víetnamskur matur kannski fremur Japönskum mat – og þó ekki. Það sem er
sameiginlegt með þessum tveimur þjóðum er einföld framsetning, hrámeti
og tærleikinn. Víetnamskar vorrúllur eru yfirleitt bornar fram hráar,
svo dæmi séu tekin. Framreiðsla margra hefðbundinna víetnamskra rétta er
þannig að grænmeti og kjötmeti er framborið sér og síðan raðar hver og
einn saman á ætan hrísgrjónapappír sínu uppáhaldi af hráefninu og
kryddar með fjölbreyttum sósum.

Fösúpan (Pho), sem er allstaðar í boði, er einnig gott dæmi um
Víetnamska matarhefð. Grunnurinn er látlaust nautakjötsoð og svo bætir
hver og einn útí því grænmeti og kryddum sem honum líkar til að malla
sína eigin súpu.

Í dag gætir áhrifa Frakka helst í arkítektur og matargerð. Víða eru góða
bakarí og vönduð frönsk vín eru einnig fáanleg í borgunum. Götusalar
selja baguette brauð með krassandi asísku áleggi og framandi sósum og
þegar hin vestræna tunga hefur vanist þessari sérkennilegu samsettningu
verður þetta uppáhald margra ferðamann.

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.