
Hvað á að gera?
Víetnam er stór, gómsætur og spennandi biti fyrir ferðafólk, hér gefur
að líta þau atriði og þá staði sem við leggjum helst áherslu á að fólk
upplifi.
-
Saigon fyrir stuðið, hraðan, menjar nýlendutímans og þetta ótrúlega
líf sem borgin býr yfir. Hvergi fæst betur miðnætursnarl, sem er eins
gott því engin vill sofa of lengi í Saigon.
-
Að sigla um óseyrar Mekong, koma við í litlum þorpum og súpa á
hrísgrjónabrennívíni, kaupa fallega bastkörfu af gamalli konu á lúnum
bát og rifja upp bátasenur úr víetnamstríðsmyndum.
-
Friðsæld Dalat með sitt tæra og svala loft, sætar sultur, besta
salat landsins og ævintýralega bifhjólaferð með Easy Riders. Lítið,
fjarlægt sætt og franskt.
-
Krítarhvítar strendur Mui Ne, hinar myndrænu sandöldur,
brimbrettaævintýri, olíu og sandnudd á ströndinni og ljúfra sólbaða.
-
Að ímynda sér daglegt líf hermanna Víetnkong í göngum og
neðanjarðabyrgjum Cu Chi og prufa að skjóta af AK-47.
-
Sitja undi rmessu og reyna að fatta Cao Dai sértrúarsöfnuðinn með
sína sérkennilegu spámenn sem telja t.d. Victor Hugo.
-
Sjórinn er sægrænn og tær við Nah Trang og ekki spilla fyrir
næturlöng parý og endalaust stuðið.
-
Hoi An er forn og ljúfur hafnarbær sem ber merki þúsund ára viðskipta
við kínverja.
-
Hue er nauðsynlegur viðkomustaður með fornar grafhvelfingar konunga
Víetnam sem sátu sínum valdastóli í þessari ævafornu borg.
-
Annað hvort hefst yfirreið um Víetnam í Hanoi eða hún endar þar.
Rólegri en systurborgin í suðri býður Hanoi uppá sterka hefð í listum og
handverki og fjölda friðsælla garða og fagurra mannvirkja.
-
Enginn ætti að fara um Hoi An án þess að staldra við í My Son sem
var höfuðstaður veldis Champa til forna, það var fyrir tíma þeirrar
þjóðar er nú ræður ríkjum í landinu.
-
Víetnamstríðið nefnist Amerískastríðið í Víetnam og það ætti enginn
að fara um landið án þess að gefa arfleifð þessara atburða gaum enda
erfitt að komast hjá því. Dagstund í ágengu og opinskáu herminjasafni í
Saigon fær alla til að hugsa um stríð og frið, réttlæti, ranglæti.
-
Að læra að komast yfir breiðstræti í Saígon á álagstíma. Að synda í
gegnum flóð af vespum, reiðhjólum og bílum án þess að panikkera.
-
Klífa fjöll Sapan og eiga kyrra stund með fjallafólkinu, kaupa
fallegan vefnað og draga að sér fjallaloftið.
-
Að tapa ekki tengingu við raunveruleikan í siglingu um fagra
kalksteinskletta Halong flóa því þér getur liðið einsog hluti af
kínversku silkimálverki því umgjörðin er svo draumkennd og fögur.
-
1.600 kílómetrara af strönd ættu að gleða sjóbuslara og
strandvistarfólk. Allir ættu að finna strönd eða eyju við sitt hæfi.
Köfun og snorkl er víða í boði og aðstæður frábærar.
-
Markaðir og verslunartækifæri eru einstök í Víetnam. Hvort sem það er
góss frá Víetnamstríðinu(Amerískastríðinu), perluskornir kistlar,
silkivefnaður eða modern málverk. Markaðir í Asíu eru ævintýri útaf
fyrir sig og það þarf ekki endilega að versla neitt, sumir koma bara til
að taka ljósmyndir J





