Siglingar í Víetnam

Frá Hanoi, höfuðborg Víetnam, er um 3ja klst akstur að höfninni í Halong þar sem siglt er útá hinn rómantíska Halongflóa. Þetta svæði tilheyrir stærsta kóralrifi sem vita er um í heiminum, en fyrir þúsundum ára reis landið úr sjó og kóralarnir breyttust í kalksteinskletta. Þetta er sama rifið og finnst í Huilin í Kína, Krabi og Khao Sok í Taílandi og víðar. Einkennin eru þau sömu allstaðar. Tignarlegar hvítar kalksteinseyjur rísa hátt úr hafi með gróðursillum og krýndar grænum hatti. Hvergi er þetta þó fegurra en í Halongflóa.

Frá Saigon liggur spennandi siglingaleið upp um ósa Mekongfljóts. Mekong fellur í Suður-Kínahaf í 5 meginstraumum í Mekongósunum í Víetnam, þar sem heimamenn nefna hana Song Cuu Long eða Níudrekafljótið. Framburður fljótsins er frjósemisáburður alls hins aðliggjandi svæðis, en hvergi nýtist það þó betur en við óshólmana í Víetnam, en hrísgrjónaræktun á því svæði einu er talið duga allri víetnömsku þjóðinni (sem telur 80 milljónir!).
Siglingaleiðin frá Saigon upp Mekong leiðir ferðalanga á slóðir ævintýra Kambódíu.

Óríental býður íslensku ævintýrafólki uppá einstakar siglingar á Mekongfljóti og Halongflóa með Bhaya, Toum Tiou og Orient Pandaw bátunum.

Bhaya skipin á Halongflóa

Frá Hanoi, höfuðborg Víetnam, er um 3ja klst akstur að höfninni í Halong. Þetta svæði tilhey...

Read more
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.