Viktor Sveinsson
Framkvæmdastjóri
Þegar Viktor snéri heim í Hveragerði eftir fyrstu heimsreisuna rúmlega tvítugur, dreymdi hann um að geta notað titilinn "ferðamaður" í símaskránni, sem þá var helsta uppflettiritið, því þetta var áður en internetið kom til sögunnar.
Þó hver vegur að heiman sé vegurinn heim er Viktor enn í heimsreisu.
Árið 1987 fór hann með bakpokann upp eftir Nílarfljóti frá Kaíró til Súdan og hringinn í kringum Viktoríuvatn um Úganda, Rúanda, Búrúndi og Tansaníu. Asía var rakin frá vestri til austurs einsog var móðins á þeim tíma, án þeirra þæginda og öryggist sem þykir sjálfsagt í dag. Malaría, villigötur, glæpagengi og óskráð ævintýri.Asía hafði fest í hann drekaklónum og innan skamms var snúinn aftur til Taílands, Kína og Filippseyja. Á Woleaieyju í Míkrónesíu buðu eyjaskeggjar honum konu, bát og strákofa fyrir kynbætur í þeirra hverfandi þjóð sem taldi bara 500 manns. Hann hafnaði því, snéri heim til frama í auglýsingagerð og markaðsmálum en hugsar þó oft til þessarar afskekktu eyju og afkomu íbúanna.Ferðamennskan tók á sig faglegri mynd þegar Viktor tók við Búðum á Snæfellsnesi og sat þar hótelbúi í áratug og fór helst ekki utan landsteina en kaus fremur sinn hnakk og einn fótfráan til fjallaferða á Fróni.Árið 2004 endaði ferðalag um Víetnam og Taíland með búsetu í Bangkok. Síðan hefur hann haldið heimili í Hua Hin, Bangkok og á Balí og þrammað fjörur og fjöll um gjörvalla Suð-Austur Asíu.Taíland er heimili hans þó hugur hans dvelji ekki minna við goðsagnir Angkor, framandleika Balí, seið Bútan eða kyrrð Luang Prabang.
Viktor rekur ferðaþjónustuna Óríental, sem er sérhæfð fyrir íslendinga á ferð um Asíu, og hefur leidd ferðafólk um víðan völl asískra ævintýra og unaðar.
- Sími:
- +66-(0) 860 90 20 70
- Netfang:
- Skype:
- viktorsveinsson
Halla “Himintungl” Frímannsdóttir
Fararstjóri og erindreki
Halla hefur í gegnum tíðina dansað og daðrað við örlagadísirnar og hefur sá dans fært henni ævintýralegar upplifanir, atvinnu og ferðalög.
Halla hefur stórt hjarta og velur sér gjarnan starf þar sem mannleg samskipti, samvinna, ferðalög og ráðgjöf skipa háan sess. Síðasta áratuginn hefur hún sinnt ýmsum störfum, m.a. verið stuðnings- og frístundaráðgjafi, aðstoðarhótelstjóri á Hótel Búðum og flugfreyja, sinnt flugumsjón í Saudi Arabíu og kennt köfun.
Halla hefur einnig gaman af ýmiss konar skipulagninu og uppákomum enda áhugasvið hennar breitt. Hún hefur til að mynda gengið um fjöll og firnindi bæði hér heima og erlendis, stundar klifur, hjólreiðar og er löggiltur PADI köfunarkennari. Halla hefur ferðast mikið jafnt á himni sem á jörðu. Hún hefur gaman af andlegum málefnum og iðkar hugleiðslu, kastar rúnum, flettir tarotspilum og skoðar vestræn stjörnukort.
Einkunnarorð Höllu eru: Hver stund er gjöf og lofsins verð , njótum augnabliksins.
Menntun: BA í tómstunda- og félagsmálafræði, löggiltur PADI köfunarkennari, diplóma í útivistarmiðuðu reynslunámi. Bowntæknir. Sjálfmenntuð í andlegum málum s.s. vestrænni stjörnuspeki. Það var einmitt í gegnum áhuga Höllu á stjörnurýni að nafngiftin Himintungl festist við þessa skrítnu galdragyðju.
Halla í stjörnukíkinum: Sól í vatnsbera 29°29'53 í 10. húsi, Tungl í krabba 29°26'27 í 1. húsi, Merkúr í vatnsbera 6°41'22 í 8. húsi, Venus í fiskum 5°27'42 í 10. Húsi, Mars í hrút 18°06'08 í 11. Húsi. Rísandi krabbi 24°08'53, miðhiminn í fiskum 0°26'11 .
- Simi:
- +66-(0) 879 27 80 81
- Netfange:
- Skype:
- himintungl1
Friðrik Erlingsson
Fararstjóri
Goðsagnir Angkor og fornir menningarheimar Indókína leiddu Friðrik upphaflega á vit Suðaustur Asíu. Í fyrstu ferð sinni til Angkor gekk hann af sér skóna í daglegum rannsóknarferðum um rústirnar og á kvöldin var lesið úr kenningum og rannsóknum fræðimanna um þessa horfnu veröld. Sem áhugamaður um söguöld Íslands, fornsögurnar og þær táknmyndir sem úr þeim má lesa, fór hann að tengja á skemmtilegan hátt ýmislegt í þessum ólíku heimsins hornum; Ísland og Angkor. Balí, mystík hindúisminn og sá framandi blær sem einkennireyjuna fangaði hug hans er hann gekk hæðir Úbúd eða rýndi í galdrastafi á strönd Sanúr.
En þegar Friðrik er ekki á faraldsfæti um Ísland eða Asíu situr hann að skriftum. Eftir hann liggur fjöldi bóka og kvikmyndahandrita, t.d. Benjamín dúfa sem gefin hefur verið út um víða veröld - þ.m.t. í Asíu.
Anchelee Sawasdee Baldursdóttir
fararstjóri
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Angie ferðast víða og starfað við margt. Fædd í Taílandi en alin upp á Íslandi og þó blóðið sé taílenskt er hugurinn rammíslenskur.
2007 til 2008 starfaði hún á skrifstofu Óríental í Bangkok auk þess að ferðast um landið í leit sinni að taílensku rótunum og til að slípa móðurmálið. Klettaklifur á Krabi, tunglhátíðir á afskekktum eyjum, óstöðvandi stuð Bangkok og friðsæl fjöll norðursins kveiktu upp áhuga og aðdáun á sögu og fortíð gamla Síam og umhyggu fyrir framtíð stórkostlegrar þjóðar í hraðri uppbyggingu.
Ferðaþráin hefur dregið Angie áfram með bakpokann um Mið- og Suður-Ameríku og Bandaríkin. Vatnasport og útivist eiga hug hennar allan og gönguleiðir Hua Hin og kayakarnir á ströndinni hafa oft dregið hana út úr Bangkok.
Erna Eiríksdóttir
Fararstjóri og erindreki
Erna Eiríksdóttir hefur verið á farandsfæti frá unga aldri, hvort sem það var með nefið ofan í gömlum ferðaskruddum eða í ævintýraferð með móður sinni í Evrópu eða Bandaríkjunum. Fyrsta stóra ævintýrið var ferð til Ísrael þegar Erna var sjö ára gömul, þá vildi hún frekar fara á sundnámskeið en fékk allavega að fljóta aðeins í Dauðahafinu. Erna kom fyrst til Suðaustur Asíu þegar hún var 12 ára með móður sinni, þær mæðgur fóru til Malasíu og Tælands árið 1998 og þá var ekki aftur snúið. Frá árinu 2003 hefur Erna dvalið mest megnis í Asíu. Erna var skiptinemi í Bogor á vestur Jövu í Indónesíu árið 2003-2004, vann í Kuala Lumpur í Malasíu sumarið þar á eftir sem mótökudama, skellti 10 kílóum í bakpoka og fór í bakpokaferðalag um Asíu í sex mánuði og Evrópu í einn mánuð að loknum menntaskóla um jólin 2006. Síðastliðin 2 ár, síðan í janúar 2008, hefur Erna búið í Kambódíu þar sem hún er í sjálfboðavinnu fyrir tvö hjálparstörf einnig kennir Erna sund og ballet í leikskóla, ensku í enskuskóla og lærir mannfræði í fjarnámi það er þegar hún er ekki í ævintýraleit í Asíu.
Að ferðast fyrir Ernu er ekki aðeins áhugamál það er hennar helsta ástríða ásamt hjálparstörfunum hennar. Í frítíma sínum finnst Ernu skemmtilegt að læra tungumál en hún talar sex tungumál nú þegar, lesa allt á milli himins og jarðar, drekka te, syngja illa í karíókí og öll útivist þá sérstaklega köfun og göngur.
Draupnir Rúnar
Fararstjóri
Draupnir Rúnar hefur endalausan áhuga á að kynna sér skrýtna hluti, hitta nýtt fólk og upplifa framandi siði og venjur. Því áhugamáli sinnir hann með tíðum ferðalögum um víða veröld. Hann hefur komið víða við og unnið í tengslum við ferðabransann síðustu 12 ár.
Að loknu stúdentsprófi fór hann í ferðaskóla og náði sér í alþjóðlega ferðagráðu. Í kjölfarið hefur hann unnið fyrir ferðaaðila bæði á Íslandi sem og í útlöndum. Asía er í sérstöku uppáhaldi hjá honum og bjó hann og starfaði í miðausturlöndum sex vetur. Einnig hefur hann unnið sem fararstjóri í Grikklandi, Tyrklandi og Mexíkó og ferðast til yfir sextíu landa.
Draupnir Rúnar vinnur í vetur sem sjálfboðaliði við að kenna fátækum börnum í Indlandi. Hann er lærður kennari og er einnig í mastersnámi við Háskóla Íslands í blaða- og fréttamennsku.
Taíland er uppáhalds landið hans enda stút fullt af öllu því sem ferðamenn vilja í fríinu sínu. Falleg náttúra, yndislegt fólk og æðislegur matur er það fyrsta sem honum dettur í hug þegar minnst er á Taíland og hlakkar hann alltaf til að koma þangað aftur.
Rakel Sófusdóttir
Fararstjóri og erindreki
Þegar Rakel sat á ströndinni á Koh Phangan í Taílandi með tærnar í hvítum sandinum og gæddi sér á grilluðum krókódíl vissi hún að það yrði ekki aftur snúið. Asía hafði heillað hana uppúr skónum. Hún fluttist því með fjölskylduna til Kambódíu þar sem hún getur starfað við bæði sín draumastörf, ferðaþjónustu og hjálparstarf.
Rakel fékk snemma áhuga á ferðamálum. Hún tók stúdentspróf á ferðamálafræðilínu við MK og seinna Ferðamálafræði við HÍ. Útþráin er mikil og fór hún sem sumarskiptinemi til Montréal í Kanada og sem Au-pair til Bergen í Noregi. Rakel hefur starfað nokkuð við ferðaþjónustu, nú síðast hjá Icelandair. Hún lætur það þó ekki duga heldur hefur einnig boðið ferðamönnum gistingu í gegnum vefsíðuna Couchsurfing og kynnst þannig fólki hvaðan að úr heiminum.
Rakel hefur einnig mikinn áhuga á mannfræði og þróunaraðstoð og hefur m.a. stundað mannfræði við H.Í., unnið sem sjálfboðaliði fyrir Rauða Krossinn með víetnömskum ungmennum á Íslandi og styrkir barn í gegnum SOS barnaþorpin. Hún stefnir á að ljúka meistaranámi í Þróunarfræði.

