
Fimm heilræði fyrir ferðalanga í Asíu
Það getur verið stuðandi að koma í óþekkt og framandi umhverfi með gjörólíkri menningu, siðum og gildismati. Hér eru fimm heilræði sem ágætt er að hafa í huga í Asíu.
Brosið!
Fyrsta heilræði er einfalt og auðlært: að brosa, brosa, brosa.
Asíubúar eru afar kurteist og prúðmannlegt fólk sem verður vandræðalegt þegar því er sýndur óverðskuldaður ruddaskapur og hættir alveg að skilja um hvað málið snýst. Hemjum óþolinmæðina- og brosum, brosum, brosum.
Forðist fordæmingu
Annað heilræði er að sýna aldrei fordæmingu eða fyrirlitningu á neinu því sem við blasir. Margt sem fyrir augu ber getur orkað tvímælis en því má ekki gleyma að í Asíu er aldrei allt sem sýnist, ekki frekar en hjá okkur í Evrópu. Það er líka auðvelt að vera gestur og benda á það sem betur mætti fara en við þekkjum ekki ástæðurnar, sem liggja að baki því að vissir hlutir eru eins og þeir eru. Svo látum vera að fordæma en finnum eitthvað að dást að í staðinn. Á slíku er heldur enginn skortur.
Forðist auðmýktarógleðina
Þriðja heilræði varðar undirgefnina. Sumum finnst lotningin og auðmýktin sem Asíubúar sýna ferðamönnum algjörlega óþolandi. Þegar þeir heilsa með því að leggja saman fingurgóma, bera hendurnar upp að brjósti og hneigja höfuðið, þá heitir það WAI á taílensku og þýðir: virðing, kveðja. Margir ferðamenn fara að svara í sömu mynt en það er ekki endilega nauðsynlegt. Það dugar að kinka kolli kurteislega á móti – og brosa. Ef þú finnur fyrir auðmýktarógleði ertu líklega farinn að taka þessu aðeins of persónulega. Gesturinn er alltaf í hávegum hafður í Asíu og gestum er ævinlega sýnd mikil virðing og kurteisi.
Betl?
Fjórða heilræði snýr að fátæktinni sem blasir sumstaðar við og betlurum, sem sjá má víða. Það er auðvelt að finna til samkenndar með þeim sem augljóslega eiga bágt. Það er líka stór þáttur í okkar kristilega uppeldi að hjálpa náunganum. En stundum þyrmir yfir okkur. Þá fer öll þessi eymd að fara í taugarnar á okkur og maður gæfi næstum því hvaða upphæð sem væri fyrir að þurfa aldrei að sjá betlara framar. Hér á við það sama og í þriðja heilræði: ekki taka ástandið of persónulega. Sumir betlarar eru í fullu starfi við þessa iðju og það amar ekkert að þeim. Margar ungar mæður ná sér í aukapening með því að betla fyrir einhvern betlikónginn, sem hirðir nær allan afrakstur dagsins. En vissulega er oft full ástæða til að rétta hjálparhönd. Ágæt regla er að ef þig langar að gefa: gefðu. Ef þig langar það ekki: ekki gefa. Betlarinn í Asíu er e.t.v. áminning um hvað við “höfum það óskaplega gott” á Vesturlöndum. En í raun snýst málið bara um þig á þeirri stund sem þú gengur fram á betlarann.
Sölumennskuandúðin
Fimmta heilræðið er einföld áminning um að láta ágenga og oft þreytandi sölumennsku ekki angra sig. Í fámenninu heima á Íslandi höfum við ekki kynnst þeirri hörku er einkennir milljónaþjóðirnar og brauðstriti þeirra. Oft hljóma boð um þjónustu, svo sem akstur, eins og argasti átroðningur og dónaleg forvitni, til dæmis þegar bílstjóri kallar ákveðið “where you go? I drive you!” * Asísk tunga hljómar oft snubbótt og gróf fyrir evrópskt eyra. Fyrir okkur hljómar þetta eins og framhleypni og átroðningur en svona býður Asíubúinn þjónustu sína. Þér, sem bleiknef, verður boðið ýmislegt sem heimamönnum er ekki boðið og því má ekki taka persónulega. Á Sílomstræti í Bangkok er öllum útlendingum boðið upp á kynlífssýningar og klámmyndir, á Balí virðast flestir karlmenn bíða þess að aka þér og í Saigon gengur ötull bóksali í spor þín hálfan daginn með allar þær bækur sem skrifaðar hafa verið um Víetnamstríðið og ætlar aldrei að gefast upp. Svona er Asía, svona er fjölmennið. Ekki taka þetta nærri þér, sýndu þolinmæði og forðastu sölumennskuandúðina.
Góða ferð með brosi, skilningi og þolinmæði.
*Hvert ertu að fara? Ég ek þér!
Þumalputtareglur
- Hafðu farsíma þinn og nafnspjald hótelsins ávallt á þér, hvert sem þú ferð.
- Einnig reiðufé (skiptimynt) og kreditkort.
- Geymdu ávallt eitthvað af bandaríkjadollurum á öruggum stað til að nota á ögurstundu.
- Mundu að í Suðaustur Asíu er vinstri umferð og því getur umferðin verið hættuleg og ruglingsleg fyrir íslendinga.
- Aldrei skal opna bílhurð út í umferðina. Stígið ávallt út úr leigubílum að gangstétt.
- Notaðu öryggisskápinn á hótelherberginu fyrir vegabréfið og annað dýrmætt sem þú geymir á herberginu.
- Farið varlega í sólinni og notið ávallt sólarvörn.
- Forðist moskítóflugur. Berið á ykkur flugnafæluáburð og hyljið ykkur vel í ljósaskiptum ef þið eruð á flugnasvæði. Verjið sérstaklega ökkla, olnboga og leggi.





