
Taílenskir dagar á Fjörukránni
Fimmtudaginn 30. september 2010 hefjast Taílenskir dagar á Hótel Víking við Fjörukrána í Hafnarfirði og standa til 3. okbóber. Taílensk menning og þjóðlíf verður kynnt á fjölbreyttan hátt, með sérstökum taílenskum réttum á hlaðborði og lifandi taílenskri tónlist með söng og dansi meðan á borðhaldi stendur. Á föstudags- og laugardagskvöld verða síðan dansleikir að thaílenskum sið fram eftir nóttu.
John Seksan er taílendingur sem búsettur hefur verið hér í nokkur ár og er hann fjölhæfur tónlistarmaður. Mun hann ásamt nemendum og samlöndum mun sjá um allan listgjörning á Taílenskum dögum,
Á milli klukkan 18:00 og 20:00 frá fimmtudeginum 30. september fram á sunnudag 3. október mun Ferðaskrifstofan Óríental standa fyrir kynningum á margbreytilegum ferðum sem eru í boði til Taílands og nágrannalanda. Ferðamálaráð Taílands stendur einnig að þessum kynningum og mun mikið úrval ferðabæklinga og kynningargagna liggja fyrir, auk þess sem starfsfólk Óríental verður á staðnum til að svara fyrirspurnum beint og kynna ákveðnar ferðir.
Fjörukráin (og Víkingaþorpið) fagnaði 20 ára afmæli í maí á þessu ári og í gegnum tíðina hefur þar verið staðið fyrir líflegum kynningum á menningu fjölda þjóða. Alls hafa um 20 þjóðlönd átt sína daga á Fjörukránni.





